Gjafapokinn inniheldur skammt í tvo kakóbolla, kristalla, Palo Santo við og fallega athöfn fyrir hjartastöðina með áherslu á hreinsun og vernd. Á pokanum er sérhönnuð mandala fyrir hjartastöðina sem hægt er að raða kristöllunum á. Fallegar leiðbeiningar fylgja og upplýsingar um allt innihald pokans. Mikill kærleikur og góð orka fór í gerð hvers og eins poka en þeir voru settir saman á nýju tungli í sporðdreka og blessaðir í bak og fyrir. Hjartahlý gjöf handa manneskju sem þér þykir vænt um en líka fullkomin gjöf frá þér til þín.
Stund fyrir hjartastöðina er samstarfsverkefni Ananda og Amala.